Útdráttur

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs setti

sér það verkefni í samstarfsyfirlýsingu árið 2009 að vinna að 20/20 Sóknará -

ætlun fyrir Ísland. Niðurstöður úr greiningarvinnu og gagnasöfnun 20/20

Sóknaráætlunar urðu í framhaldi grunnurinn að stefnumarkandi framtíðar -

sýninni, Ísland 2020. Eitt af verkefnum Íslands 2020 er að einfalda, fækka og

samþætta helstu stefnur og áætlanir sem ráðuneyti og stofnanir hafa verið að

setja fram á síðastliðnum árum. Grundvöllur þeirrar vinnu var greining á 11

stefnum og áætlunum með það að leiðarljósi að fækka þeim, samþætta og

einfalda en jafnframt vinna heildstæðar tillögur að breyttu skipulagi fyrir

stefnumótun og áætlanagerð innan stjórnsýslunnar. Greiningin á stefnunum

var unnin sem hluti af verkefninu um einföldun og fækkun stefna og áætlana.

Heildargreiningin var upp á 198 greiningarþætti. Af þeim voru 108 til staðar

(55%), 52 voru að hluta til staðar (26%) og 38 voru ekki til staðar (19%).

Þegar litið er til grunnþáttanna, eins og hvort stefnan eða áætlunin byggi á

rann sóknum eða greiningum þá kemur það almennt nokkuð vel út úr grein -

ingunni. Greiningin leiðir í ljós að styrkleiki stjórnsýslunnar felist í undirbún -

ingi, greiningu og setningu markmiða. Veikleiki stjórnsýslunnar felst m.a. í

skorti á tengingu við fjármagn, ófullnægjandi framkvæmd og tak markaðri

eftirfylgni. Í greininni eru lagðar fram tillögur að nýrri framtíðarsýn í stefnu -

mótun innan stjórnsýslunnar. Þær fela í sér að bæta yfirsýn og vinnu brögð,

m.a. með því að fækka stefnum og áætlunum, tengja stefnumótun og áætlana -

gerð ráðuneyta við undirbúning fjárlaga og tryggja að árangursmat og eftirlit

sé alltaf fyrir hendi.

Efnisorð: Stefna, stefnumótun, áætlanagerð, samhæfing, Ísland 2020.